Leita
 
 
ForsíðaLeikum af listKennsluefniLeikritSögurMyndirHafðu samband
 

Innskráning






Týnt lykilorð?
Ekki með aðgang? Búðu til einn
Leikum af list.is

gift_titilsida.jpg

Leikum af list er vefsíða með vandað kennsluefni sem tengir saman íslensku, tal og hlustun, talað mál og framsögn, leiklist, lífsleikni, tónmennt og bókmenntir.  Kennsluefni er  hægt  að nota á milli skólastiga þ.e.a.s. frá leikskóla upp í grunnskóla. Þar sem kennsluefnið tekur á tónmennt, leiklist, bókmenntum og íslensku ættu kennarar að geta notað það á fjölbreyttan hátt. Einnig er fjöldinn allur af leikritum fyrir öll stigin. Ég tel  mikilvægt að auka framboð á efni sem tengist leiklist og leikrænu ferli en vefsíðan er hugsuð sem gullkista fyrir þá sem hafa áhuga á að nota leiklist í skólastarfi.   

Aðeins skráðir notendur geta skoðað efni hennar.

Skráning er öllum opin og er án endurgjalds.

Átt þú efni sem þú vilt deila með öðrum kennurum? Ef svo er, hafðu þá endilega samband við ritstjóra.

Vefsíða þessi er styrkt af þróunarsjóði námsgagna.